Þitt fyrirtæki í aðalhlutverki |

Íslandsbanki

Þitt fyrirtæki í aðalhlutverki

Þjóðfélagið er fullt af áhrifavöldum, stjörnulæknum, stjörnulögfræðingum og stjórnmálafólki, en hverjar eru hinar stjörnur atvinnulífsins? Lítil og meðalstór fyrirtæki gegna mikilvægu hlutverki í íslensku atvinnulífi og markmiðið var að draga þau í sviðsljósið. Okkar hugmynd var að fá fjölbreytt úrval fulltrúa frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum í glamúrmyndatöku, eins og alvöru stjörnum sæmir. Rauði litur Íslandsbanka var áberandi í myndefninu til að tengja það við sterkt vörumerki bankans. Fyrirsögnin “Þitt fyrirtæki í aðalhlutverki” undirstrikar þá þjónustu sem Íslandsbanki veitir fyrirtækjum. Íslandsbanki hefur reynslu, réttu lausnirnar og ástríðu fyrir því að íslensk fyrirtæki eigi stórleik á sviði atvinnulífsins. Myndir: Ari Magg

    Hvað var gert?

  • Grafísk hönnun

  • Hugmyndavinna

  • Hreyfigrafík

  • Framleiðsla

  • Textavinna

  • Tökur