Gætir þú knúsað heilan vinnustað?
Hjálpaðu okkur að úthýsa aðalvanda vinnumarkaðarins.
Svo að litlu krílin komist með okkur í vinnuna.
Aukum gagnsæi innan auglýsingabransans.
Ritaðu með okkur á hið óskrifaða blað sem framtíðin er.
Æskilegt er ef viðkomandi er jafnvígur á kaffi og smúðinga.
Að verja vörumerki fyrir skemmdum er þjóðþrifastarf.
Kveikir vísitala neysluverðs í þér?
Dragðu fram það allra besta í TVIST-teyminu.
Við hjá TVIST viljum ólm bæta hugmyndaríkum grafískum hönnuði við okkar öfluga teymi.
Allt frá fyrsta degi höfum við lagt alúð við að ná árangri en gleyma aldrei gleðinni. Við trúum á mikilvægi þess að hlúa að hæfileikum, að stemning geri kraftaverk og að „af því bara” sé aldrei rétta svarið.
Ef þú ert sama sinnis, að öllu eða langmestu leyti, skaltu ekki hika við að vera í bandi og senda okkur tölvupóst með atvinnuumsókn á tvist@tvist.is
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2022.