Kajak og lúxus
Engin venjuleg auglýsingaherferð fyrir sjónvarpsþættina Venjulegt fólk

grafísk hönnun
hugmyndavinna
textasmíði
framleiðsla
Kajak og lúxus
Ferðaþjónustufyrirtækið Kajak&Lúxus leikur stórt hlutverk í gamanþáttunum Venjulegt fólk enda hugarfóstur Tomma, eins af aðalsöguhetjum þáttanna. Til þess að kynna aðra þáttaröð Venjulegs fólks útbjuggum við auglýsingaherferð sem auglýsti Kajak&Lúxus eins og um raunverulegt fyrirtæki væri að ræða.

Heimagert yfirbragð herferðarinnar var allt í anda hins söluglaða og ofurjákvæða Tomma „Kajak&Lúxus“ og ef fólk hringdi í símanúmerið sem auglýst var tók við símsvari í karakter.
