Heimsins bestu foreldrar
Auglýsingaherferð og söfnunarátak fyrir Heimsforeldra Unicef. Verkefni náði hápunkti í söfnunarþættinum Heimsins besta kvöld sem sýndur var í beinni útsendingu á Rúv.

hugmyndavinna
textasmíði
grafísk hönnun
Hver kannast ekki við gjafabolla eins og „Heimsins besta amma” og „Besti pabbi í heimi?” Við sóttum innblástur í þá skemmtilegu hefð í herferð fyrir Unicef sem bar heitið, Heimsins bestu foreldrar. Heimsforeldrar Unicef eru jú raunverulega bestu foreldrar í heimi því þeir bæta lífskjör barna um allan heim. Árangur af verkefninu var framar vonum enda lagði mikið af góðu fólki hönd á plóg.





Ert þú heimsins besta foreldri?

