Fyrir fermingarbörn á öllum aldri
Það er aldrei of seint að skipta um skoðun og hoppa á fermingarvagninn.

hugmyndavinna
grafísk hönnun
textasmíði
Fermingargjafirnar nú til dags eru í allt öðrum klassa en fermingargjafirnar á tíunda áratugnum. Á því leikur enginn vafi. Það skyldi því enginn álasa ófermdum manni á fimmtugsaldri fyrir að ákveða að nú sé rétti tíminn til að fermast. Upp úr þannig þankagangi spratt hugmyndin að nýjustu fermingarherferð ELKO sem við sköpuðum ásamt einvalaliði fólks hjá SNARK og Audioland. Og prufukeyrðum feikn af fermingargjöfum.